Svona seturðu saman matartilboð í Wolt appinu.

Nýttu vörur sem eru nú þegar á matseðlinum til að setja saman sérstök matartilboð, tilboðspakka eða önnur tilboð sem geta hvatt viðskiptavini til að panta meira.

Yfirlit

Matartilboð einfalda pöntunina og geta hvatt viðskiptavini til að velja fleiri vörur í einu.

Undir “listing manager” í Söluaðilagáttinni geturðu búið til matartilboð, tilboðspakka og 2 fyrir 1 tilboð fyrir vörur sem eru nú þegar á matseðlinum. 

Með því að nýta matartilboð er hægt að:

  • Hvetja viðskiptavini til að panta meira

  • Kynna vinsælar samsetningar

  • Auka sýnileika sérstakra tilboða

  • Gera tilboðin sýnilegri á matseðlinum

Matartilboð sem þú getur sett saman

“Listing manager” styður þrjár mismunandi tegundir tilboða:

 1. Stöðluð matartilboð (fastar vörur)

Stöðluð matartilboð eru með fyrirfram ákveðna vörusamsetningu. Dæmi: Hamborgari + franskar + drykkur. Viðskiptavinir fá nákvæmlega þær vörur sem fylgja matartilboðinu.

2. Matartilboð eftir flokkum (hægt er að sérsníða)

Viðskiptavinir velja vörur úr mismunandi flokkum og fá matartilboðin á föstu verði.

Dæmi:

  • Veldu einn aðalrétt

  • Veldu eitt meðlæti

  • Veldu einn drykk

Viðskiptavinir fá fleiri valkosti en pöntunarferlið er áfram einfalt.

3. 2 fyrir 1 tilboð

Viðskiptavinir kaupa eina vöru og fá aðra frítt.

Dæmi: Keyptu eina pizzu og fáðu einn gosdrykk frítt með Varan sem fylgir með þarf ekki að vera sú sama og varan sem keypt er.

Svona býrðu til matartilboð undir “listing manager”

1. Opnaðu “listing manager” og búðu til matartilboð

Skráðu þig inn á Söluaðilagáttina:

  • Opnaðu “listing manager”

  • Veldu Búa til

  • Veldu Búa til matartilboð

Þá velurðu hvers konar matartilboð þú vilt búa til. 

2. Bættu við nafni og lýsingu fyrir matartilboðið

Veldu nafn sem er skýrt og auðvelt að skilja svo viðskiptavinir átti sig strax á tilboðinu. 

Við mælum með að nota skýr heiti eins og matartilboð, tilboðspakki eða tilboð. 

Dæmi:

  • Hádegistilboð

  • Fjölskyldutilboð

  • Hamborgarapakki

Bættu við stuttri lýsingu með upplýsingum um:

  • Hvað sé innifalið

  • Upplýsingar um afslátt eða sérkjör

Hafðu lýsinguna stutta og auðlesanlega.

3. Veldu hvar matartilboðið birtist á matseðlinum

Þú getur:

  • Bætt matartilboðinu við flokk sem nú þegar er til

  • Búið til nýjan flokk fyrir matartilboð eða venjuleg tilboð

Við mælum með að hafa matartilboðin ofarlega á matseðlinum svo viðskiptavinir finni þau auðveldlega.

Dæmi um heiti á flokkum:

  • Fjölskyldutilboð

  • Hádegistilboð

  • Sértilboð

4. Bættu vörum í matartilboðin

Næstu skref eru mismunandi eftir því hvers konar matartilboð var valið. 

Fyrir stöðluð matartilboð (fastar vörur)

Veldu vörurnar sem eiga að vera í matartilboðinu.

Kröfur:

  • Lágmark: 2 vörur

  • Hámark: 4 vörur

Vinsælar samsetningar fela oft í sér:

  • Aðalréttur + drykkur

  • Aðalréttur + meðlæti + drykkur

  • Fjölskyldurmáltíðir

Þú getur einnig nýtt tillögur frá gervigreind til að fá hugmyndir að matartilboðum á fljótlegri máta.

Fyrir matartilboð eftir vöruflokkum (hægt að sérsníða)

Veldu vöruflokkana sem viðskiptavinir geta valið úr.

Dæmi:

  • Aðalréttur

  • Meðlæti

  • Drykkur

“Listing manager” bætir sjálfkrafa við vörum úr völdum flokkum. Þú getur fjarlægt vörur eða breytt valmöguleikunum hvenær sem er.

Fyrir 2 fyrir 1 tilboð

Veldu:

  1. Vöruna sem viðskiptavinir greiða fyrir

  2. Vöruna sem viðskiptavinir fá frítt

Varan sem fylgir með í kaupbæti þarf ekki að vera sú sama og varan sem keypt er.

Dæmi:

Keyptu 1 pítsu og fáðu 1 gosdrykk frítt með

5. Að verðleggja matartilboðin

Fyrir stöðluð matartilboð reiknast upphafsverðið sjálfkrafa út frá vörunum sem valdar eru.

Þegar tilboðspakki er settur saman eftir vöruflokkum reiknast verðið sjálfkrafa út frá ódýrustu vörunni í hverjum flokki.

6. Bættu myndum við matartilboðin

Myndirnar verða svo nýttar á sjálfkrafa máta til að búa til mynd af matartilboðinu.

Þú getur einnig:

  • Fjarlægt myndir

  • Sett inn þínar eigin myndir

  • Breytt myndunum handvirkt

Skýrar myndir auðvelda viðskiptavinum að sjá strax hvað er í boði þegar þeir skoða matseðilinn.

7. Bættu afslætti við matartilboðið

Þú getur bætt við:

  • Föstum afslætti

  • Prósentuafslætti

Við mælum með að:

  1. Skrá fyrst upprunalegt verð matartilboðsins

  2. Bæta síðan við afslætti

Þetta gerir viðskiptavinum kleift að sjá sparnaðinn með yfirstrikuðu verði.

Matartilboð eru einföld leið til að sýna vinsælar vörusamsetningar, kynna tilboð og hvetja viðskiptavini til að panta meira. Byrjaðu á vinsælustu vörunum, prófaðu ólíkar samsetningar og sjáðu hvað virkar best fyrir þína viðskiptavini.

Þarftu frekari leiðbeiningar?