Hvernig söluaðilar geta náð árangri á Wolt frá fyrsta degi

Kynntu þér hvernig söluaðilar á Wolt geta aukið sýnileika, fengið fleiri pantanir og komið staðnum sínum vel af stað frá fyrsta degi.

Yfirlit

Þegar allt er sett upp með réttum hætti frá upphafi ertu líklegri til að ná góðum árangri á Wolt. 

Söluaðilar sem halda staðnum sínum opnum fyrir pantanir, viðhalda sterkum matseðli og veita viðskiptavinum áreiðanlega og góða upplifun eru líklegri til að laða að sér viðskiptavini og auka sýnileika í appinu.

Hér er farið yfir einfaldar leiðir til að hjálpa staðnum þínum að ná góðum árangri á Wolt frá fyrsta degi.

Vertu sýnilegur á netinu og ekki missa af pöntunum

Af hverju þetta skiptir máli

Viðskiptavinir geta aðeins pantað frá stöðum sem eru opnir og taka við pöntunum. Þeim oftar sem staðurinn þinn er opinn á netinu, því fleiri tækifæri hafa viðskiptavinir til að finna þig og panta hjá þér.

Ef staðurinn þinn er oft á tíðum ekki opinn á netinu eða tekur ekki við pöntunum þegar mest er að gera fara viðskiptavinir einfaldlega annað.

Skoðaðu leiðarvísinn okkar Hvernig hámarka má aðgengi staðarins til að finna fleiri leiðir til að bæta aðgengið hjá þér.

Bestu starfsvenjur

  • Passa þarf að skráður opnunartími staðarins passi við raunverulegan opnunartíma staðarins. 

  • Hafðu söluaðilaappið alltaf opið

  • Forðastu tímabundnar lokanir eftir fremsta megni

  • Gakktu úr skugga um að spjaldtölvan, prentarinn eða POS-tengingin virki rétt

  • Þegar mikið er að gera skaltu merkja vörur sem eru ekki í boði eins fljótt og hægt er

  • Undirbúðu þig fyrir háannatíma með nægu starfsfólki og birgðum

Ef tæknileg vandamál koma upp skaltu skoða Úrræðaleit fyrir Wolt-prentara og spjaldtölvur svo hægt sé að leysa vandamálið fljótt og örugglega og koma pöntunum aftur af stað.

Gott ráð: Staðir sem eru alltaf opnir á netinu hafa tilhneigingu til að fá fleiri pantanir með tímanum.

Stilltu nákvæman og samkeppnishæfan opnunartíma

Af hverju þetta skiptir máli

Nákvæmur opnunartími hjálpar viðskiptavinum að vita hvenær þeir geta pantað hjá þér. Þegar mest er að gera borgar sig að hafa opið fyrir pantanir. Þá eru meiri líkur á að viðskiptavinir sjái staðinn í appinu.

Bestu starfsvenjur

  • Passaðu að opnunartíminn sé alltaf réttur

  • Hafðu opið fyrir pantanir á háannatímum, ef svo er hægt

  • Forðastu að loka fyrr en auglýst er

  • Uppfærðu opnunartíma á frídögum með góðum fyrirvara

Þarftu aðstoð við að uppfæra opnunartímann hjá þér? Lestu Einföld skref til að stilla opnunartíma staðarins.

Uppfæra opnunartímann hjá mér

Gott ráð: Jafnvel að hafa opið aðeins lengur þegar mikið er að gera getur hjálpað þér að ná til fleiri viðskiptavina.

Settu saman skýran og aðlaðandi matseðil

Af hverju þetta skiptir máli

Matseðillinn er eitt af því fyrsta sem viðskiptavinir taka eftir þegar þeir ákveða hvaðan þeir ætla að panta. Skýr og vel skipulagður matseðill auðveldar viðskiptavinum að velja og panta.

Bestu starfsvenjur

  • Bættu hágæðamyndum við eins marga rétti og hægt er 

  • Hafðu úrvalið fjölbreytt svo fleiri finni eitthvað við sitt hæfi

  • Notaðu einföld og skýr heiti á réttum

  • Bættu við gagnlegum vörulýsingum

  • Skiptu matseðlinum þínum í flokka sem auðvelt er að skoða

  • Fjarlægðu rétti sem eru ekki í boði eins fljótt og hægt er

Viltu bæta myndirnar á matseðlinum? Lestu Hvernig á að bæta við eða breyta myndum á matseðlinum á Wolt til að fá góð ráð og gagnlegar leiðbeiningar.

Uppfæra matseðilinn minn núna

Gott ráð: Staðir með fullbúna og uppfærða matseðla eru líklegri til að fá pantanir frá viðskiptavinum sem skoða appið.

Bjóddu upp á sanngjarna og samkeppnishæfa verðlagningu

Af hverju þetta skiptir máli

Viðskiptavinir bera oft saman mismunandi staði áður en þeir ákveða að leggja inn pöntun. Þegar verðin eru skýr og samkeppnishæf er auðveldara fyrir viðskiptavini að taka ákvörðun og panta hjá þér.

Samræmd verð á öllum vörum geta líka hjálpað til við að byggja upp traust hjá viðskiptavinum. Frekari upplýsingar er að finna hér:Hvernig samræmd verðlagning á matseðli eykur sýnileika þinn á Wolt.

Bestu starfsvenjur

  • Farðu reglulega yfir verðin þín

  • Passaðu að verð á matseðlinum séu rétt

  • Bjóddu upp á samsett tilboð eða máltíðartilboð sem veita viðskiptavinum meira fyrir peninginn

  • Passaðu að skammtar og lýsingar samræmist væntingum viðskiptavina

Bættu sýnileika þinn með auglýsingum og kynningartilboðum

Af hverju þetta skiptir máli

Auglýsingar og kynningartilboð geta hjálpað fleiri viðskiptavinum að uppgötva staðinn þinn á Wolt. Þær geta nýst sérstaklega vel þegar staðurinn er nýr í appinu, þegar þú kynnir nýjar vörur eða vilt fá fleiri pantanir á rólegri tímum.

Bestu starfsvenjur

  • Bjóddu upp á kynningartilboð á rólegri tímum til að laða að fleiri pantanir

  • Kynntu vinsælar vörur eða nýjungar á matseðlinum

  • Prófaðu einföld tilboð eins og fría sendingu, samsett tilboð eða prósentuafslátt

  • Byrjaðu rólega með fjármagnið fyrir auglýsingarnar og aðlagaðu það eftir árangri frekar.

  • Fylgstu með hvaða kynningartilboð skila bestum árangri hjá viðskiptavinum

Ef þú ert nýr í markaðsherferðum á Wolt skaltu skoða Markaðsherferðir 101: Hvernig á að nota auglýsingar og kynningartilboð til að læra grunnatriðin.

Setja upp herferð núna

Ertu ekki viss um hvaða markaðstól passa við markmiðin þín? Að velja réttu Wolt-markaðstilboðin fyrir fyrirtækið þitt getur hjálpað þér að skilja muninn á Ads, Promos og Wolt+.

Viltu fá fleiri til að panta hjá þér í fyrsta sinn? Kynntu þér hvernig Fire Deals geta hjálpað staðnum þínum að skera sig úr gagnvart nýjum viðskiptavinum.

Fækkaðu höfnuðum pöntunum

Af hverju þetta skiptir máli

Viðskiptavinir búast við hnökralausri og áreiðanlegri pöntunarupplifun. Tíðar hafnanir á pöntunum fela ekki aðeins í sér tapaða sölu heldur einnig glatað tækifæri til að byggja upp tryggð viðskiptavina. Sérhver höfnun á pöntun veldur tekjutapi og eykur líkurnar á að viðskiptavinir velji frekar einn af þínum samkeppnisaðilum í framtíðinni, sem leiðir til tekjutaps til lengri tíma.

Bestu starfsvenjur

  • Samþykktu pantanir eins fljótt og hægt er

  • Haltu vöruframboði uppfærðu yfir daginn

  • Settu vörur sem ekki eru í boði í pásu eða bjóddu sambærilegar vörur í staðinn fyrir að hafna allri pöntuninni

  • Passaðu að starfsfólkið kunni að taka við Wolt-pöntunum

  • Tengdu POS-kerfið við Wolt

Lestu eftirfarandi til að fá frekari upplýsingar:

Gott ráð fyrir samstarfsaðila okkar sem eru ekki veitingastaðir: Þegar vörur klárast getur það hjálpað að bjóða aðrar vörur í staðinn. Þannig má fækka endurgreiðslum og bæta upplifun viðskiptavina. Frekari upplýsingar er að finna í Hvernig draga má úr endurgreiðslum með því að bjóða sambærilegar vörur í staðinn.

Gott ráð: Hægt er að forðast mörg pöntunarvandamál með því að halda framboði á vörum á matseðlinum uppfærðu þegar mest er að gera.

Fylgstu reglulega með árangrinum

Af hverju þetta skiptir máli

Regluleg yfirferð á því hvernig staðurinn þinn stendur sig getur hjálpað þér að koma snemma auga á vandamál og finna leiðir til úrbóta. Smávægilegar uppfærslur með tímanum geta hjálpað til við að bæta upplifun viðskiptavina og styðja við langtímavöxt.

Bestu starfsvenjur

  • Farðu vikulega yfir frammistöðu staðarins

  • Fylgstu með umsögnum og athugasemdum viðskiptavina

  • Skoðaðu hvaða vörur seljast vel og hvaða vörur gætu þarfnast úrbóta

  • Prófaðu smávægilegar breytingar með tímanum og fylgstu með niðurstöðunum

Skoða upplýsingar um mína frammistöðu

Gott ráð: Þú getur einnig notað Merchant Portal til að finna umbótatækifæri sem eru sérsniðin að staðnum þínum. Frekari upplýsingar er að finna hér: Fáðu sérsniðnar ráðleggingar um vöxt í Wolt-söluaðilagáttinni.

Þarftu frekari leiðbeiningar?