Byrjaðu að nota Wolt Drive API

Tengdu netverslunina þína beint við sendlanet Wolt og gerðu allt heimsendingarferlið sjálfvirkt.

Yfirlit

Með Wolt Drive geturðu boðið upp á hraða heimsendingu á eigin vefsíðu eða í appi, með sendlum Wolt og rakningu alla leið. Wolt Drive API tengir greiðsluferlið þitt beint við Wolt og sér sjálfkrafa um að óska eftir heimsendingu, senda sendil af stað og rekja pöntunina. Enginn þarf að slá pöntunarupplýsingarnar inn aftur.

Hér færðu yfirsýn yfir hvernig API virkar svo þú og tækniteymið þitt getið metið umfang verkefnisins. Ítarlegar tæknilegar upplýsingar má finna í leiðbeiningum Wolt Drive fyrir forritara.

Hvað er Wolt Drive API?

Wolt Drive API tengir netverslunina þína við heimsendingarnet Wolt Drive. Ferlið er sjálfvirkt og í tveimur skrefum: kerfið þitt kannar fyrst hvort hægt sé að senda pöntunina heim og hvað það kosti og skráir síðan heimsendinguna. Viðskiptavinirnir panta áfram á vefsíðunni þinni eða í appinu, þú notar sömu birgða- og greiðslukerfi og áður en núna sér Wolt um heimsendinguna.

Tengingin er útfærð í þínu kerfi, svo þú ræður pöntunarferlinu, hvernig vörumerkið þitt birtist og hvernig heimsending er kynnt við greiðslu. Þú getur boðið Wolt Drive alfarið undir þínu eigin vörumerki. Viðskiptavinirnir sjá því aðeins merki Wolt ef þú vilt. Kerfið þitt stýrir öllu ferlinu. Wolt Drive sér sem sagt um heimsendingar fyrir þínar eigin sölurásir, án þess að þú skráir verslunina á sölutorg.

Er API-tenging fyrir þig?

API-tenging hentar ef þú vilt aðlaga greiðsluferlið að fullu að þínum þörfum og hefur forritara til að setja tenginguna upp og viðhalda henni. Hún hentar fyrirtækjum sem vilja að heimsending sé hluti af heildarupplifuninni þegar pantað er hjá þeim og fá nægilega margar pantanir til að það borgi sig að fjárfesta í uppsetningu tengingarinnar.

Ef þú hefur ekki aðgang að forriturum eða vilt byrja strax að bjóða heimsendingu eru tvær aðrar leiðir í boði:

  • Samstarfsaðili sem býður uppá middleware hugbúnað fyrir netverslanir getur tengt Wolt Drive við algeng netverslunarkerfi með lítilli sem engri forritun. Sjá listann yfir samstarfsaðila sem bjóða tengingar.

  • Með Wolt Drive vefforritinu getur þú pantað sendil beint í vafranum án þess að setja upp kerfistengingu. Þú getur notað það fyrir pantanir sem berast í síma eða á samfélagsmiðlum, eða á meðan unnið er að API-tengingunni þinni.

Svona virkar Drive API: frá pöntun til heimsendingar

Pöntunarferlið er í tveimur skrefum: fyrst er kannað hvort heimsending sé í boði og síðan er hún skráð. Eftir það getur þú fylgst með sendingunni á leiðinni.

  1. Kannaðu hvort heimsending sé í boði: Áður en þú býður Wolt Drive við greiðslu kannar kerfið þitt hvort Wolt geti sótt pöntunina hjá þér og sent hana á heimilisfang viðskiptavinarins.  Ef heimsending er í boði fær kerfið staðfestingu ásamt áætluðum tíma og verðinu sem Wolt rukkar þig fyrir heimsendinguna. Verðið miðast við vegalengd og helst óbreytt nema þú bætir við upplýsingum þegar þú skráir heimsendinguna. Þú ræður hvað þú rukkar viðskiptavininn. Ef heimilisfangið er utan heimsendingarsvæðis eða staðurinn er lokaður kemur það fram í svarinu. Þá ætti ekki að bjóða Wolt Drive fyrir þá pöntun.

  2. Skráðu heimsendinguna: Þegar viðskiptavinurinn hefur pantað sendir kerfið þitt beiðni um heimsendingu á viðeigandi API-endapunkt, ásamt upplýsingum um viðtakandann, leiðbeiningum fyrir sendilinn og öllum upplýsingum um pakkann. Ef þú þarft viðbótarþjónustu fyrir heimsendinguna, til dæmis staðgreiðslu við afhendingu, óskarðu líka eftir henni hér.

  3. Fylgstu með pöntuninni: Þegar heimsendingin hefur verið skráð sendir Wolt stöðuuppfærslur í kerfið þitt með vefkrókum (webhooks). Þannig geturðu fylgst með hvenær sendillinn er væntanlegur og fengið staðfestingu á afhendingu án þess að skipta um kerfi. Wolt býr líka til rakningartengil fyrir hverja pöntun. Þú getur sent viðskiptavininum tengilinn í SMS-skilaboðum eða látið Wolt senda hann fyrir þig.

💡 Gott að vita: Sendli er úthlutað eftir að pöntunin hefur verið skráð. Fyrsta nákvæma tímaáætlunin liggur fyrir þegar Wolt hefur reiknað út hentugustu leiðina, yfirleitt 30–60 sekúndum eftir að pöntunin er stofnuð. Þegar tímasetningar skipta miklu máli, til dæmis í eldhúsum, er best að bíða eftir fyrstu tilkynningunni frá vefkróknum order.pickup_eta_updated áður en litið er á tímaáætlunina sem endanlega, til dæmis áður en hún er birt í eldhúsinu.

Með forskráðum stöðum eða án forskráningar

Þú getur valið um tvær leiðir til að skrá hvar sendlar sækja pantanir.

Algengast er að nota forskráða staði og mælum við með þeirri leið. Þá eru staðirnir þínir skráðir fyrirfram í kerfum Wolt. Það auðveldar sendlum og þjónustuveri vinnuna og gefur betri yfirsýn í skýrslum. Það býður líka upp á sérstakar reglur um heimsendingu fyrir hvern stað (til dæmis „engar heimsendingar með bíl frá þessum stað“). Þessi leið hentar söluaðilum með miðlungsmargar eða margar pantanir á hverjum stað. Tengingin notar endapunktana shipment-promises, deliveries og available-venues.

Án forskráðra staða þýðir að með hverri heimsendingarbeiðni sendirðu allar upplýsingar um staðinn þar sem sækja á pöntunina og Wolt skráir hann sérstaklega fyrir þá heimsendingu. Þessi leið hentar söluaðilum sem eru með starfsemi á mörgum stöðum en fáar pantanir á dag frá hverjum þeirra, til dæmis verslanakeðjum. Þessi leið notar endapunktana delivery-fee og delivery-order. Ræddu við tengiliðinn þinn hjá Wolt áður en þú velur þessa leið.

💡 Gott að vita: Þú getur líka sameinað báðar leiðir ef það hentar rekstrinum þínum.

Þetta þarftu áður en þú byrjar

Áður en þú byrjar að forrita tenginguna þarftu að hafa:

  • Samning við Wolt og aðgangsupplýsingar fyrir forritara. Hafðu samband við Wolt Drive-teymið á þínu svæði til að ganga frá þessu.

  • Leið til að halda birgðastöðu á hverjum stað réttri og uppfærðri, svo vörurnar séu tilbúnar þegar sendillinn kemur.

  • Leið til að ákveða hvaða staður afgreiðir hverja pöntun út frá fjarlægð, vöruframboði eða álagi.

  • Reglur í kerfinu sem leyfa aðeins að panta heimsendingu sem fyrst meðan opið er og bjóða helst upp á að bóka heimsendingu fram í tímann þegar lokað er.

  • Það er reitur þar sem viðskiptavinir geta bætt við leiðbeiningum fyrir sendilinn (dyrakóða, hæð), svo hann eigi auðveldara með að finna rétta staðinn.

  • Góð meðhöndlun á villumeldingum, svo viðskiptavinir fái skýr skilaboð ef heimilisfangið er utan heimsendingarsvæðisins í stað þess að reyna aftur og aftur. Þótt heimilisfang virðist rétt er ekki alltaf hægt að senda þangað, svo mikilvægt er að kerfið grípi slíkt líka.

Svona sækirðu um tengingu og setur hana upp

  1. Hafðu samband við Wolt Drive-teymið. Hafðu samband við Wolt Drive-teymið á þínu svæði í gegnum wolt.com/drive til að gera samning og fá aðgangsupplýsingar fyrir forritara og stað til að nota við prófanir.

  2. Skipuleggðu uppsetninguna. Farðu vel yfir hvað viðskiptavinurinn, starfsfólkið og sendillinn þurfa að gera í hverju skrefi. Tæknitengiliðurinn þinn hjá Wolt getur aðstoðað þig við skipulagninguna.

  3. Þróaðu tenginguna í prófunarumhverfinu. Wolt veitir aðgang að þróunarumhverfi með auðkenni fyrir prófunarstað og aðgangstákni, svo þú getir þróað og prófað tenginguna á öruggan hátt áður en hún er tekin í notkun.

  4. Settu upp tveggja skrefa ferlið og einnig vefkrókana. Fylgdu yfirlitinu yfir API-endapunkta og leiðbeiningunum um vefkróka til að láta kerfið kanna hvort heimsending sé í boði, skrá hana og fylgjast með stöðu hennar.

  5. Prófaðu og taktu í notkun. Prófaðu viðbrögð við villum og útreikning áætlaðra tíma. Skiptu svo yfir í aðgangsupplýsingar fyrir raunumhverfið. Tæknitengiliðurinn þinn hjá Wolt aðstoðar þig í gegnum allt ferlið.

Eiginleikar sem þú getur stillt

API býður upp á ýmsa viðbótareiginleika sem þú getur valið eftir þörfum fyrirtækisins og þeim markaði sem þú starfar á (framboð fer eftir svæðum, svo leitaðu upplýsinga hjá tengiliðnum þínum hjá Wolt):

  • Hröð eða tímasett heimsending: Ef óskað er eftir heimsendingu sem fyrst er miðað við að hún taki innan við klukkustund. Tímasetta heimsendingu má bóka með 60 mínútna til 7 daga fyrirvara.

  • Sveigjanleg verðlagning: Wolt gefur upp heildarverðið sem verður innheimt hjá þér, að meðtöldum viðeigandi sköttum og gjöldum. Þú ræður síðan hvort viðskiptavinurinn greiðir allan kostnaðinn, hluta hans eða ekkert.

  • Skilríkjaskoðun: Mikilvægt er að sendilinn staðfesti bæði aldur og upplýsingar viðskiptavinarins við afhendingu, til dæmis þegar um er að ræða áfengi eða aðrar vörur sem aldurstakmark gildir um.

  • Staðfesting afhendingar með PIN-númeri: Tryggðu að verðmætar vörur eða vörur sem takmarkanir gilda um komist í réttar hendur.

  • Staðgreiðsla við afhendingu og þjórfé: Þar sem þjónustan er í boði geta sendlar tekið við reiðufé eða fyrirframgreiddu þjórfé fyrir þína hönd.

  • SMS-tilkynningar: Sendu viðskiptavinum rakningartengil sjálfkrafa þegar pöntunin berst og/eða þegar sendillinn sækir hana.

Algengar spurningar um Wolt Drive API

1. Er Wolt Drive API fyrir mig?

Það hentar ef þú vilt geta sérsniðið greiðsluferli og hefur aðgang að forriturum. Viltu komast af stað án forritunar? Skoðaðu viðbót fyrir netverslun eða Wolt Drive vefforritið.

2. Þurfa viðskiptavinirnir mínir Wolt-appið?

Nei. Þeir panta og greiða hjá þér á vefsíðunni eða í appinu eins og áður. Wolt sér svo um að senda sendil af stað.

3. Getur starfsfólkið mitt undirbúið eða tekið saman pantanir í söluaðilaöppum Wolt?

Nei. Starfsfólkið heldur sínu verklagi í versluninni og viðskiptavinirnir panta áfram á vefsíðunni þinni eða í appinu. Wolt Drive sér um heimsendinguna og ekkert annað.

4. Verður merki Wolt sýnilegt viðskiptavinum?

Þú ræður því. Ef þú vilt geturðu boðið Wolt Drive alfarið undir þínu eigin vörumerki.

5. Hvað þarf mikla forritunarvinnu?

Það þarf að setja tenginguna upp og skrifa smá kóða til að hægt sé að taka við pöntunum fyrir hraða heimsendingu. Wolt veitir teyminu þínu ítarlegar leiðbeiningar, prófunarumhverfi og tækniaðstoð á þínu svæði.

6. Get ég breytt pöntun eftir að hún hefur verið stofnuð?

Eftir að pöntun er stofnuð leyfir API ekki breytingar á flestum pöntunarupplýsingum. Ef eitthvað er rangt geturðu hætt við pöntunina og stofnað hana aftur eða fengið aðstoð hjá þjónustuveri Wolt á þínu svæði. Yfirleitt er hægt að hætta við pöntun þar til sendillinn byrjar að sækja hana. Eftir það skaltu ræða við tengiliðinn þinn hjá Wolt um hvað sé hægt að gera. Það gæti kostað aukalega.

7. Hversu nákvæmur er áætlaður heimsendingartími?

Fyrsti tíminn sem gefinn er upp er gróf áætlun. Eins og áður kom fram fæst nákvæmari tímaáætlun 30–60 sekúndum eftir að pöntunin er stofnuð.

Þarftu aðstoð?

Tæknitengiliðurinn þinn hjá Wolt aðstoðar þig ef spurningar vakna, hvort sem tengingin er enn í vinnslu eða komin í notkun. Þú getur líka haft samband við þjónustuver söluaðila hvenær sem er á corporate.wolt.com.

Þarftu frekari leiðbeiningar?