Byrjaðu að nota Wolt Drive-vefinn

Einfaldasta leiðin til að byrja að heimsenda með Wolt Drive. Engin samþætting, engin forritun, engin skuldbinding.

Wolt Drive-vefurinn er farsímavænt vefviðmót sem þú getur notað í hvaða tæki sem er, án þess að þurfa að hlaða niður eða setja neitt upp. Ef þú getur slegið inn afhendingarheimilisfang og símanúmer geturðu sent með Wolt Drive.

Yfirlit

Hentar Wolt Drive-vefurinn þér?

Wolt Drive-vefurinn er tilvalinn fyrir þig ef þú:

  • Ert ekki með eigin sendlaflota og vilt hefja heimsendingar strax, án tæknilegrar uppsetningar eða fjárfestingar

  • Ert með eigin sendla en þarft aukinn stuðning þegar mikið er að gera, þeir eru ekki tiltækir eða anna ekki eftirspurn

  • Tekur við pöntunum í síma, á staðnum eða í gegnum samfélagsmiðla og ert ekki með vefsíðu eða app til að tengja við

  • Ert að bíða eftir að Wolt Drive API-samþætting eða viðbót verði tilbúin en vilt geta boðið upp á heimsendingar strax

  • Vilt lausn þar sem þú greiðir eftir notkun, án falinna gjalda eða skuldbindinga. 

Ef þú vilt frekar samþætta heimsendingu inn í greiðsluferlið í vefversluninni þinni gæti Wolt Drive API eða viðbót fyrir netverslanir hentað þér betur.

Það sem þú þarft til að byrja

Mjög lítið. Til að nota Wolt Drive-vefinn þarftu aðeins:

  • Wolt Drive-aðgang. Wolt Drive teymið á þínu svæði sér um að setja hann upp. Þú getur óskað eftir aðgangi hér.

  • Tæki með vafra, hvort sem það er fartölva, spjaldtölva eða sími. Þú þarft ekki að hlaða neinu niður.

  • Upplýsingar um heimsendinguna fyrir hverja pöntun: hvert hún á að fara og hver tekur við henni.

Tvær vefgáttir: drive.wolt.com og corporate.wolt.com

Wolt Drive notar tvær aðskildar vefgáttir. Það er gott að vita hvaða vefgátt á að nota fyrir hvert verkefni:

  • drive.wolt.com er vefgáttin sem þú notar í daglegum rekstri. Þar býrðu til heimsendingar, slærð inn upplýsingar um viðtakanda og fylgist með pöntunum í rauntíma. Þetta er skjárinn sem starfsfólkið þitt verður með opinn á opnunartíma.

  • corporate.wolt.com er bakvinnslugáttin. Notaðu hana til að hafa umsjón með starfsstöðvum og notendum, stýra aðgangsheimildum, skoða heimsendingarferilinn og fá aðgang að reikningum og skýrslum.

Hvort þú notar aðra eða báðar fer eftir hlutverki þínu. Starfsfólk í daglegum rekstri notar aðallega drive.wolt.com, en stjórnendur og eigendur nota einnig corporate.wolt.com til að hafa umsjón með starfsstöðvum og skoða reikninga.

Hvernig á að útbúa heimsendingu

Þegar pöntun berst skaltu fylgja þessum skrefum til að panta sendil:

  1. Skráðu þig inn á drive.wolt.com.

  2. Veldu Ný heimsending (New delivery).

  3. Staðfestu upplýsingar um sækistaðinn. Þetta er staðsetningin þar sem sendillinn sækir pöntunina.

4. Sláðu inn upplýsingar um afhendingarstað:

  • Heimilisfang (Address): Sláðu inn afhendingarheimilisfang viðtakandans.

  • Leiðbeiningar fyrir sendilinn (valfrjálst) (Instructions for the courier (optional)): Bættu við upplýsingum sem hjálpa sendlinum að finna staðinn, svo sem dyrakóða, hæðarnúmeri eða heiti íbúðar.

  • Nafn viðtakanda og símanúmer (Name of receiver and phone number).

💡Ábending: Farðu vandlega yfir símanúmerið. Þetta símanúmer notar sendillinn til að hafa samband við viðtakandann og þangað er rakningarslóðin send.

5. Undir „Upplýsingar um heimsendingu (Delivery details)“ skaltu velja heimsendingartímann:

  • Eins fljótt og auðið er (As soon as possible): Heimsendingin verður afhent innan næstu 60 mínútna. Ef þú þarft nokkrar mínútur til að undirbúa pöntunina áður en sendillinn kemur skaltu nota „Hversu langan tíma þarftu? (How much time do you need?)“ til að stilla undirbúningstímann.

  • Tímasetja síðar (Schedule for later): Veldu ákveðinn tíma eða dag fyrir heimsendinguna.

6. Ef heimsendingin hefur einhverjar sérstakar kröfur skaltu stilla „Viðbótarupplýsingar eða kröfur (Additional details or requirements)“ á „Já (Yes)“:

  • Tegund heimsendingar (Delivery type): Veldu „Greiða með korti við afhendingu (Card on delivery)“ ef sendillinn þarf að taka við greiðslu frá viðskiptavininum við afhendingu, eða „Stór eða þung heimsending (Large or heavy delivery)“ fyrir ofstóra eða fyrirferðarmikla hluti, svo réttur sendingaraðili verði sendur í verkefnið.

  • Kröfur um heimsendingu (Delivery requirements): Veldu „Athugun PIN-kóða (PIN code check)“, „Aldursstaðfesting (Age check)“ eða „Snertilaus heimsending (No-contact delivery)“ eftir þörfum.

  • Einstakt tilvísunarnúmer (valfrjálst) (Unique reference number (optional)): Bættu við eigin pöntunarnúmeri til að tengja heimsendinguna við þín gögn.

 7. Staðfestu beiðnina. Sendill er sendur til að sækja pöntunina hjá þér.

💡 Gott að vita: Heimsendingar sem eiga að berast sem fyrst eru yfirleitt afhentar á innan við klukkustund. Ef þú tímasetur heimsendinguna fyrir fram fær viðskiptavinurinn sjálfkrafa rakningarslóð. Þá geturðu auðveldlega boðið afhendingu á ákveðnum tíma.

Fylgstu með heimsendingunni

Um leið og heimsendingin er á leiðinni fær viðskiptavinurinn sjálfkrafa rakningarslóð. Þar getur hann fylgst með sendlinum í rauntíma og séð áætlaðan komutíma. Þú getur einnig fylgst með stöðunni á drive.wolt.com. Þegar pöntunin hefur verið afhent færðu sjálfkrafa staðfestingu. Þannig veistu alltaf að heimsendingunni er lokið.

Þarftu aðstoð?

Ef þú þarft aðstoð eða hefur einhverjar spurningar er þjónustuver söluaðila alltaf til taks í spjallinu. 96% spjallsamskipta fá einkunnina „framúrskarandi“ og svör berast yfirleitt á innan við mínútu. Þú getur haft samband við þá hvenær sem er í gegnum corporate.wolt.com.

Þarftu frekari leiðbeiningar?